14.07.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Clark frá Newcastle til Sheffield á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ciaran Clark er genginn til liðs við Sheffield United, sem leikur í næst efstu deild á Englandi. Hann kemur á láni frá Newcastle.
Clark þótti ekki standa fyrir sínu í vörn Newcastle í upphafi tímabils en Eddie Howe stjóri liðsins styrkti vörnina í janúar glugganum og Clark var ekki skráður í hópinn seinni hluta tímabilsins.
Vörn liðsins er enn sterkari núna með komu Sven Botman og var það eina í stöðunni fyrir Clark að yfirgefa félagið, þó er það bara á láni út komandi tímabil.
Sheffield United komst í umspil um sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en tapaði í undanúrslitum fyrir Nottingham Forest sem að lokum tryggði sér sæti í deildinni.
Our newest Bladesman, Ciaran Clark. ⚔️ pic.twitter.com/ClI6qLaKIt
— Sheffield United (@SheffieldUnited) July 13, 2022
