Lengjudeildin: Bræður tryggðu langþráðan sigur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grótta 1 - 2 Grindavík
0-1 Haraldur Björgvin Eysteinsson ('6 )
1-1 Hrannar Ingi Magnússon ('23 )
1-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('53 )
0-1 Haraldur Björgvin Eysteinsson ('6 )
1-1 Hrannar Ingi Magnússon ('23 )
1-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('53 )
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 2 Grindavík
Grótta og Grindavík áttust við í seinni leik dagsins í Lengjudeild karla og náðu gestirnir forystunni snemma leiks, þegar Haraldur Björgvin Eysteinsson skoraði eftir magnað einstaklingsframtak. Hann fékk boltann við miðjubogann, rakti hann áfram um 15 metra og hleypti af bylmingsskoti sem var óverjandi fyrir markvörð heimamanna.
Seltirningar voru ekki lengi að svara fyrir sig. Þeir bönkuðu á dyrnar og jafnaði Hrannar Ingi Magnússon metin eftir baneitraða stoðsendingu frá Björgvin Brima Andréssyni. Björgvin var afar líflegur og fékk færi til að skora sem hann nýtti ekki, svo staðan var jöfn í leikhlé.
Grindvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn á marki líkt og þeir höfðu gert í þeim fyrri. Í þetta sinn skoraði Rúnar Ingi Eysteinsson eftir fasta fyrirgjöf fyrir markið.
Bæði lið fengu færi til að bæta marki við leikinn en tókst ekki. Grótta skipti um gír á lokakaflanum og áttu heimamenn skot í slá og stöng en boltinn rataði ekki í netið, svo lokatölur urðu 1-2 fyrir gestina og fyrsti sigur Grindvíkinga í deildinni síðan í maí. Þetta er aðeins annar sigur liðsins á deildartímabilinu.
Grindavík fer upp í 13 stig eftir 13 umferðir með þessum sigri. Þar er liðið fimm stigum frá fallsvæðinu á meðan Grótta er áfram með 19 stig í baráttunni um umspilssæti.
Til gamans má geta að Haraldur Björgvin og Rúnar Ingi sem skoruðu mörk Grindvíkinga eru bræður úr Kópavogi. Þeir eru synir Eysteins Péturs Lárussonar, framkvæmdastjóra KSÍ.