Starfið var ekki undir gegn ÍA - „Erum aðeins að bregðast við því núna"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Djuric í leiknum í gær.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Umræðan í kringum KA hefur verið á þá leið að það hlyti að vera orðið heitt undir Hallgrími Jónassyni þjálfara KA. KA hafði fyrir leikinn gegn ÍA á sunnudag tapað sex leikjum í röð og féll í vor út gegn Ægi í Mjólkurbikarnum. KA lenti 0-2 undir gegn ÍA en náði að koma til baka og vann 3-2 sigur þar sem sigurmarkið kom undir lok leiks.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um stöðuna.
Horfðuð þið sem standið að liðinu á leikinn gegn ÍA sem úrslitaleik fyrir Hadda?
Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um stöðuna.
Horfðuð þið sem standið að liðinu á leikinn gegn ÍA sem úrslitaleik fyrir Hadda?

TENGT EFNI
Haddi: Frábært að fá þennan sigur sem við erum búnir að bíða lengi eftir
„Nei, það var ekki komið þannig hjá okkur. Við höfum horft á það, eins og undanfarin ár, að Haddi er þjálfarinn okkar og við erum í þessu saman. Við höfum verið klaufar að ná ekki í betri úrslit, verið óheppnir með mannskap og höfum fengið það í bakið að við fórum inn í tímabilið kannski veikir inn á miðjunni. Við ætluðum að láta Rodri vera í stóru hlutverki en svo meiðist hann. Mikael Breki (Þórðarson) sem átti að vera næstur inn er búinn að vera meira og minna meiddur allt tímabilið líka. Það er óheppni í þessu með það að gera, við erum aðeins að bregðast við því núna með því að fá alvöru mann inn á miðjuna til að hjálpa liðinu þar. Við höfum verið að reyna finna einhverja lausn þar sem hefur ekkert gengið alltof vel," segir Sævar.
Það er það sem við höfum beðið eftir
Stærsta fjárfestingin fyrir mót voru kaupin á Danijel Dejan Djuric frá Króatíu. Danijel hefur ekki staðið undir væntingum á tímabilinu en átti góðan leik gegn ÍA. Það var væntanlega ánægjulegt að sjá Danijel Djuric stíga upp?
„Mjög flott, það er búinn að vera stígandi í þessu finnst mér í síðustu 3-4 leikjum og hann var frábær í leiknum, átti stóran þátt í tveimur mörkum og gaman að sjá að hann var að skemmta sér inn á vellinum, taka menn á og að búa til færi. Það er það sem við höfum beðið eftir og vonandi verður sama upp á teningnum þar áfram."
Það er það sem við höfum beðið eftir
Stærsta fjárfestingin fyrir mót voru kaupin á Danijel Dejan Djuric frá Króatíu. Danijel hefur ekki staðið undir væntingum á tímabilinu en átti góðan leik gegn ÍA. Það var væntanlega ánægjulegt að sjá Danijel Djuric stíga upp?
„Mjög flott, það er búinn að vera stígandi í þessu finnst mér í síðustu 3-4 leikjum og hann var frábær í leiknum, átti stóran þátt í tveimur mörkum og gaman að sjá að hann var að skemmta sér inn á vellinum, taka menn á og að búa til færi. Það er það sem við höfum beðið eftir og vonandi verður sama upp á teningnum þar áfram."


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Djuric í leiknum í gær.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

TENGT EFNI
Hefur ekki áhyggjur af eigin stöðu - „Stjórn KA veit hvaða mann ég hef að geyma“

TENGT EFNI
„Sá Djuric sem maður kannast við“
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 15 | +17 | 32 |
| 3 | Fram | 14 | +12 | 30 |
| 4 | Breiðablik | 14 | +8 | 25 |
| 5 | Valur | 15 | -5 | 19 |
| 6 | Keflavík | 14 | -7 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 14 | -26 | 8 |





