14.08.14 - 17:06
Elvar Geir Magnússon
Atli Eðvalds hættur með Aftureldingu (Staðfest)

Atli Eðvaldsson er hættur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Eðvaldsson er hættur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfaraskipti hafa orðið hjá 2. deildarliði Aftureldingar en Atli Eðvaldsson, sem tók við stjórnartaumunum fyrir tímabilið, er hættur störfum.
Afturelding er í sjötta sæti deildarinnar og dottinn úr möguleika á að komast upp.

Tilkynning Aftureldingar:
Knattspyrnudeild Aftureldingar og Atli Eðvaldsson hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem þjálfara meistaraflokks karla.
Samið hefur verið við Úlf Arnar Jökulsson aðstoðarþjálfara að taka að sér stjórn liðsins út leiktímabilið og mun Bjarki Már Sverrisson yfirþjálfari yngri flokka verða honum til aðstoðar þann tíma.
Stjórn Aftureldingar vill nota tækifærið og þakka Atla kærlega fyrir vel unnin störf á tímabilinu og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
F. hönd stjórnar mfl kk Aftureldingar
Óli V. Steindórsson