Fotbolti.net
14.08.14 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Defour er kominn til Anderlecht (Staðfest)

Defour á 44 landsleiki að baki með Belgíu þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára gamall.

Defour á 44 landsleiki að baki með Belgíu þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára gamall.

Canon

Mynd: Getty Images

Porto er búið að staðfesta söluna á Steven Defour til Anderlecht á 6 milljónir evra, eða rétt tæpar 5 milljónir punda.

Defour er 26 ára belgískur miðjumaður og var orðaður við PSV Eindhoven í Hollandi en valdi að fara aftur til heimalandsins.
Defour, sem á 111 leiki að baki fyrir Porto, er fimmti leikmaðurinn sem félagið losar sig við í sumar.

Defour var í belgíska landsliðinu á HM en spilaði ekkert eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Suður-Kóreu.

Anderlecht hefur ekki enn staðfest kaupin.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.