14.08.14 - 18:14
Daníel Freyr Jónsson
Javi Garcia til Zenit (Staðfest)

Javi Garcia.

Mynd: Getty Images

Javi Garcia.

Mynd: Getty Images
Rússneska félagið Zenit St. Petersburg hefur tilkynnt um kaupin á Spánverjanum Javi Garcia frá Manchester City.
Talið er að kaupverðið nemi um 13 milljónum punda og skrifaði Garcia undir fimm ára samning.
Garcia náði aldrei að festa sig í sessi sem lykilleikmann hjá City og eftir komu Fernando í sumar færðist hann aftar í goggunarröðina. Hann spilaði þá 48 leiki á þeim tveimur árum sem hann var til mála hjá Englandsmeisturunum.
Þessi 27 ára gamli varnartengiliður lék með City í tvö ár, en félagið keypti hann frá Benfica á 16 milljónir punda. Áður lék hann með Real Madrid eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf félagsins.