Fotbolti.net
14.08.14 - 16:54
Magnús Már Einarsson

Martin Kelly til Crystal Palace (Staðfest)

Kelly er mættur til Palace.

Kelly er mættur til Palace.

Canon

Mynd: Crystal Palace

Crystal Palace hefur fengið varnarmanninn Martin Kelly í sínar raðir frá Liverpool.

Talið er að Kelly kosti Crystal Palace 1,5 milljón punda en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.

Kelly hefur lítið komið við sögu hjá Liverpool undanfarin ár en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum.

<i>,,Ég er í skýjunum. Ég er ánægður með að hafa skrifað undir og hlakka til helgarinnar,\"</I> sagði Kelly í dag.
Kelly gæti spilað sinn fyrsta leik með Crystal Palace þegar liðið mætir Arsenal í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.