14.08.14 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raul Jimenez kominn til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Raul Jimenez á aðeins eftir að standast læknisskoðun og skrifa undir fyrirfram samþykktan samning hjá Atletico Madrid.
Jimenez er 23 ára gamall mexíkóskur sóknarmaður og kemur hann frá mexíkóska félagsliðinu Club America á 8 milljónir punda.

Jimenez á 26 landsleiki að baki fyrir Mexíkó en skoraði 36 mörk í 96 leikjum fyrir America í heimalandinu.
Sóknarmaðurinn er 190cm hár og öflugur í loftinu og var partur af liði Mexíkó sem vann Ólympíugull í London 2012.
,,Hann er gríðarlega efnilegur leikmaður og mun nýtast vel í sóknarlínu okkar. Hann hefur mikinn metnað fyrir því að standa sig vel í Evrópu,\" sagði Jose Luis Perez Caminero, yfirmaður íþróttamála hjá Atletico.
,,Hann er mjög góður í loftinu, er sterkur og getur því haldið boltanum vel meðan hann bíður eftir að samherjar komi í sókn. Hann gefur okkur nýja og spennandi möguleika í sóknarleiknum.\"
Atletico er ríkjandi Spánarmeistari en missti helstu stjörnu sína Diego Costa til Chelsea.