Fotbolti.net
14.08.14 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Shane Long til Southampton (Staðfest)

Shane Long.

Shane Long.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur keypt framherjann Shane Long frá Hull City á tólf milljónir punda.

Þessi 27 ára gamli Íri skrifaði undir fjögurra ára samning við Southampton.

Long stoppaði ekki lengi hjá Hull því hann kom til félagsins frá WBA á sjö milljónir punda í byrjun árs.

<i>,,Þetta var erfið ákvörðun fyrir mig en þegar þú kemur til Southampton þá sérðu hversu stórt félag þetta er,\"</I> sagði Long.
Long mun að öllum líkindum spila sinn fyrsta leik með Southampton á sunndag þegar liðið mætir Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.