Fotbolti.net
14.08.14 - 18:59
Daníel Freyr Jónsson

Southampton fær varnarmann Steaua Bucharest (Staðfest)

Florin Gardos.

Florin Gardos.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur fengið til sín rúmenska landsliðsmanninn Florin Gardos frá Steaua Bucharest fyrir um 6 milljónir punda.
Þessi 25 ára gamli varnarmaður er annar leikmaðurinn sem Southampton fær í dag, en Shane Long gekk einnig í raðir liðsins í dag.

Líklegt er að Ronald Koeman, stjóri Southampton, líti á Gardos sem arftaka Dejan Lovren sem seldur var til Liverpool fyrir skömmu.

Það hefur mikið verið um að vera í leikmannamálum Southampton í sumar og er Gardos sjöundi leikmaðurinn sem liðið kaupir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.