Fotbolti.net
14.08.14 - 20:11
Daníel Freyr Jónsson

Tony Pulis hættur með Crystal Palace (Staðfest)

Tony Pulis.

Tony Pulis.

Canon

Mynd: Getty Images

Tony Pulis hefur sagt upp starfi sínu sem knattspyrnustjóri Crystal Palace, innan við tveimur sólarhringum áður en enska úrvalsdeildin hefst.
Hávær orðrómur fór af stað fyrr í kvöld um að Pulis gæti yfirgefið Palace, en Sky Sports greindi þá frá því að fundur stæði yfir milli Pulis og forráðamanna félagsins.

Illa hefur gengið hjá Palace á leikmannamarkaðinum í sumar, en félagið hefur fengið fjóra leikmenn. Félagið missti þó af mörgum leikmönnum sem Pulis vildi fá í leikmannahópinn og við það var hann ósáttur.

Pulis tók við Palace snemma á síðustu leiktíð. Hann gerði magnaða hluti með liðið og var að margra mati stjóri ársins í deildinni. Palace hafnaði í 11. sæti deildarinnar eftir að hafa setið á botninum í október.

Crystal Palace mætir Arsenal í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag. Keith Millen mun stýra liðinu í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.