Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 14. ágúst 2019 15:15
Magnús Már Einarsson
De Rossi skoraði í fyrsta leik með Boca Juniors
De Rossi fagnar marki sínu.
De Rossi fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Daniele De Rossi spilaði sinn fyrsta leik með Boca Juniors í Argentínu í gærkvöldi.

De Rossi kom óvænt til Boca Juniors frá Roma í sumar og hann stimplaði sig inn með marki strax í fyrsta leik.

De Rossi skoraði í óvæntu tapi gegn B-deildarliði Almagro í argentínska bikarnum.

Markið kom með skalla eftir hornspyrnu við mikinn fögnuð stuðningsmanna Boca Juniors.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Almagro vann 3-1 í vítaspyrnukeppni.
Athugasemdir
banner
banner