Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. ágúst 2020 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Barca og Bayern: Níu fjarkar hjá Barca
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Bayern München gjörsamlega rúllaði yfir Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Börsungar áttu aldrei möguleika gegn gríðarlega beittu og sókndjörfu liði Bæjara sem vann sögulegan 8-2 sigur.

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir og fá langflestir í liði Barca falleinkunn en enginn þó undir 4. Lionel Messi var bestur í liði Barca með 6 í einkunn.

Í liði Bayern var Thomas Müller bestur með 8 í einkunn, jafn mikið og Thiago Alcantara og Philippe Coutinho sem kom inn af bekknum og setti tvennu.

Alphonso Davies átti stórleik en fær 7 fyrir sinn þátt, eins og Joshua Kimmich, Leon Goretzka, Serge Gnabry og Robert Lewandowski.

Bayern mætir annað hvort Manchester City eða Lyon í undanúrslitum.

Barcelona: Ter Stegen (5), Semedo (4), Pique (4), Lenglet (4), Alba (5), Roberto (4), Busquets (4), De Jong (4), Vidal (4), Messi (6), Suarez (5).
Varamenn: Griezmann (4), Fati (4)
.
FC Bayern: Neuer (6), Kimmich (7), Boateng (6), Alaba (6), Davies (7), Thiago (8), Goretzka (7), Gnabry (7), Muller (8), Perisic (8), Lewandowski (7).
Varamenn: Coman (6), Coutinho (8), Sule (6), Hernandez (7), Tolisso (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner