Boltinn byrjar að rúlla aftur í Pepsi Max-deildinni þegar KR og FH mætast í stórleik klukkan 18:00 í Vesturbænum í kvöld. Fótbolti.net setti saman líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.
Finnur Tómas Pálmason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson, sem mynduðu miðvarðapar KR í fyrra, voru klárir eftir meiðsli í síðasta leik gegn Fjölni og þeir spiluðu saman þar. Mesta spurningamerkið í byrjunarliði KR er hvort Finnur Orri Margeirsson eða Arnþór Ingi Kristinsson byrji á miðjunni með Pablo Punyed og Pálma Rafni Pálmasyni.
Hjá FH er líklegt að Eggert Gunnþór Jónsson spili sinn fyrsta leik en hann kom til félagsins á dögunum. Fótbolti.net spáir því að Eggert byrji í hjarta varnarinnar. Ólafur Karl Finsen kom á láni frá Val í vikunni en hann mun líklega byrja á bekknum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir