Tindastóll er í toppbaráttu Lengjudeildar kvenna eftir sjö umferðir, ásamt Keflavík og Gróttu.
Stólarnir eru að styrkja sig fyrir komandi átök í toppbaráttunni og kræktu í tvo lánsmenn frá Pepsi Max-deildarliði Þór/KA.
Lánsmennirnir eru Agnes Birta og Rakel Sjöfn, báðar eru þær Stefánsdætur.
Agnes Birta er fædd 1997 og á 18 leiki að baki með Þór/KA í meistaraflokki, auk 12 með Hömrunum. Rakel Sjöfn er fædd 2000 og hefur spilað 49 leiki fyrir Hamrana.
Næsti leikur Tindastóls er gegn Aftureldingu á Sauðárkróksvelli næsta sunnudag.
Athugasemdir