Fotbolti.net
14.08.20 - 09:16
Elvar Geir Magnússon

Willian búinn að skrifa undir hjá Arsenal (Staðfest)

Willian búinn að skrifa undir hjá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Arsenal

Brasilíumaðurinn Willian hefur skrifað undir samning til þriggja ára við Arsenal. Hann mun klæðast treyju númer tólf.

Þessi 32 ára sóknarleikmaður kemur á frjálsri sölu frá Chelsea en hann býr yfir mikilli reynslu og hefur spilað yfir 600 leiki. Hann hefur tvisvar orðið Englandsmeistari með Chelsea.

„Ég trúi að hann sé leikmaður sem geti gert mikið fyrir okkur. Við vildum fá inn mann sem gæti spilað sem sóknarmiðjumaður eða á vængnum og hann gefur okkur ýmsa möguleika," segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

„Hann er fjölhæfur og getur spilað í þremur eða fjórum stöðum. Hann hefur upplifað allt í boltanum en hefur samt metnað í að koma hingað og hjálpa okkur að ná lengra. Ég er búinn að vera mjög heillaður í samræðum við hann."
Willian búinn að skrifa undir hjá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.