Fotbolti.net
14.08.21 - 11:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Raphael Varane í Man Utd (Staðfest)

Verður í treyju númer 19.

Verður í treyju númer 19.

Canon

Mynd: Getty Images

Núna fyrir stuttu var að hefjast leikur Manchester United og Leeds í ensku úrvalsdeildinni.
Stuðningsmenn Man Utd fengu glaðning fyrir leik því áður en flautað var til leiks þá gekk inn á völlinn franski miðvörðurinn Raphael Varane.

Man Utd náði samkomulagi við Real Madrid um kaup á Varane fyrir nokkrum vikum síðan. Félagið tilkynnti samt ekki kaupin formlega fyrr en í dag, á leikdegi.

Segja má að það hafi í raun verið gert þegar hann gekk inn á Old Trafford fyrir leik Man Utd og Leeds. Hann gekk inn á völlinn með treyju númer 19.

Varane getur því spilað með Man Utd um næstu helgi þegar liðið heimsækir Southampton.

Varane er talinn til bestu miðvarða heims en Rauðu djöflarnir sleppa ansi vel með kaupverð og borga aðeins rúmar 40 milljónir punda fyrir heimsmeistarann. Varane er 28 ára gamall og hefur unnið mikinn fjölda titla á sínum leikmannaferli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.