14.08.21 - 09:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveinn Aron í Elfsborg (Staðfest)

Sveinn Aron Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Aron Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn í raðir sænska félagsins Elfsborg.
Hann kemur til Elfsborg frá ítalska félaginu Spezia. Hann skrifar undir samning við sænska félagið sem gildir til ársins 2024.
„Mér líður eins og þetta sé rétta skrefið fyrir mig," segir Sveinn Aron sem er spenntur fyrir því að hefjast handa hjá nýju félagi í nýju landi.
Sveinn Aron er 23 ára gamall sóknarmaður sem gekk í raðir Spezia frá Breiðabliki 2018. Síðan þá hefur Sveinn spilað með bæði Ravenna og OB á láni en hann var hjá OB á síðustu leiktíð og skoraði þá eitt mark í 13 leikjum.
Elfsborg leikur í efstu deildinni í Svíþjóð og er í fjórða sæti þegar 14 umferðir eru búnar. Sveinn verður ekki eini Íslendingurinn hjá Elfsborg því þar er líka markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson.
Sveinn, sem meðal annars ólst upp hjá Barcelona, á að baki fjóra A-landsleiki fyrir Ísland.