Kitlar að fá fyrirsagnirnar - „Held að þetta hafi samt ekki verið rosalega mikill peningur“

Kominn aftur heim í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks um síðustu helgi.

Mynd: Breiðablik

Í leik með Breiðabliki í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn aftur heim í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Þorleif fyrr í dag um skrefið heim, lífið í Bandaríkjunum og um þann vígalega skurð sem hann er með á enninu eftir samstuð á æfingu Breiðabliks fyrr í dag.

Þorleifur: Rétti stökkpallurinn aftur í atvinnumennsku
„Þetta tók einhverjar nokkrar vikur. Þetta kom svolítið upp úr þurru. Þeir höfðu samband og ég hafði strax áhuga að koma aftur í Breiðablik og að spila fyrir liðið mitt. Við vorum alltaf að róa í rétta átt og svo komumst við að samkomulagi. Þetta tók nokkrar vikur.“
Komnar aðrar aðstæður
Þorleifur lék með Breiðabliki seinni hluta síðasta tímabils en fór síðan út til Loudoun. Hann var spurður hvort að það hefði ekki verið möguleiki á að vera áfram í Kópavoginum.
„Það var möguleiki á því en ég taldi þetta vera besta kostinn á þeim tíma. Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.
Þeir sýndu mikinn áhuga. Þegar maður finnur fyrir þannig ást, vilja og áræðni í að koma manni heim og þeir koma fram við mann eins og alvöru leikmann þá kitlar mun meira að vera heima. Að sjálfsögðu bara best að vera í Breiðabliki.“
Með vígalegan skurð
Í viðtalinu sést að Þorleifur er með ansi stóran skurð við vinstra augað. Hann og Jónatan Guðni skullu saman á æfingu með þeim afleiðingum að Jónatan braut báðar framtennur sínar og sauma þurfti nokkur spor á Þorleifi.
„Þetta kom upp á æfingu í dag. Við lentum saman ég og Jonni (Jónatan Guðni Arnarsson). Það voru saumuð nokkur spor en það er allt í lagi með mig.“
Breiðablik mætir KR á Meistaravöllum á sunnudag og segist Þorleifur vera klár í slaginn þrátt fyrir samstuðið í dag. „Já, ég held það. Hann lenti aðeins verr í þessu en ég held að hann verði góður,“ sagði Þorleifur léttur.
Keyptur fyrir metfé
Þegar Loudoun United tilkynnti að Þorleifur væri á förum frá félaginu tók liðið sérstaklega fram að um metfé væri að ræða - aldrei hefur leikmaður frá liðinu verið keyptur á jafn mikla upphæð.
Kitlaði að sjá það?
„Já, það er alltaf gaman að fá einhverjar fyrirsagnir. Þetta var ekkert rosalega mikill peningur held ég. En þeir eru að reyna nota þetta til að koma sér áfram sem félag sem nær að reyna selja leikmenn. Þeir gera eins mikið úr þessu og þeir geta.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum í heild sinni hér að ofan.
A historic milestone for the Red-and-White ?????
— Loudoun United Football Club (@LoudounUnitedFC) August 9, 2026
Sporting Director Alen Marcina shares his thoughts on Thor Úlfarsson’s transfer to Icelandic powerhouse Breiðablik FC, marking the largest fee and first international transfer in club history. pic.twitter.com/8rm9VHhGQ0

Kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks um síðustu helgi.

Mynd: Breiðablik

Í leik með Breiðabliki í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
