Fotbolti.net
13.08.26 - 22:16
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool gefur allt í botn á lokadögum gluggans

Liverpool gefur allt í botn á lokadögum gluggans
Canon

Mynd: EPA

Liverpool ætlar að setja aukinn kraft í viðræðurnar við Paris Saint-Germain um Bradley Barcola á síðustu tíu dögum félagaskiptagluggans. Þetta kemur fram í L'Equipe.
Liverpool hefur verið á eftir Barcola um nokkurt skeið en viðræðurnar hafa gengið hægt.

Enska félagið hefur þegar náð samkomulagi við Barcola um kaup og kjör. Enn ber þó mikið á milli Liverpool og PSG þegar kemur að kaupverðinu.

PSG vill fá 170 milljónir evra fyrir franska landsliðsmanninn en Liverpool er aðeins tilbúið að greiða á bilinu 110 til 120 milljónir.

L'Equipe segir Liverpool ætla að hægja á viðræðunum næstu níu daga áður en allt verður sett í botn undir lok félagaskiptagluggans.

Liverpool vonast til að pressan á PSG aukist eftir því sem líður á gluggann. Barcola vill ekki framlengja samning sinn og takist franska félaginu ekki að selja hann í sumar mun verðmiðinn lækka verulega á næsta ári, þegar aðeins eitt ár verður eftir af samningnum.

Taktíkin er þó ekki áhættulaus. Arsenal hefur einnig verið orðað við Barcola og gæti nýtt tækifærið á meðan Liverpool bíður.

Liverpool vill heldur ekki endurtaka mistökin frá síðasta sumri þegar félagið reyndi að fá Marc Guehi frá Crystal Palace. Liverpool hægði þá á viðræðunum og beið fram á lokadag gluggans með að gera lokatilraun.

Palace taldi þá of seint að finna arftaka og ákvað að halda Guehi, en seldi hann í næsta glugga til Man City fyrir lægra verð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.