Fotbolti.net
14.08.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Maresca um Enzo: Man City kaupir engan í dag

Enzo Maresca.

Enzo Maresca.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal og Manchester City mætast í Cardiff á sunnudag í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Leikurinn markar upphaf nýs tímabils en þar leika Englandsmeistararnir gegn bikarmeisturunum.

Leikið verður á Principality leikvangnum en ekki á Wembley þar sem sá leikvangur var bókaður fyrir tónleika The Weeknd.

Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City, greindi frá því að spænski miðjumaðurinn Rodri væri snúinn aftur til æfinga eftir meiðsli en gaf lítið upp um framtíð hans. Búist er við því að Rodri gangi í raðir Barcelona.

„Glugginn er opinn, við getum keypt og selt leikmenn. Allt getur gerst. Ég hitti Rodri áðan og gaf honum faðmlag, hann lítur vel út. Sjáum hvað gerist," sagði Maresca um framtíð Rodri.
Chelsea gefur Man City frest
TENGT EFNI

Chelsea gefur Man City frest

Fjallað hefur verið um áhuga Manchester City á Enzo Fernandez hjá Chelsea. Einhverjir fjölmiðlar segja Chelsea hafa gefið City frest til dagsins í dag til að gera tilboð.

„Hann er leikmaður hjá öðru félagi og mér finnst ekki rétt að ræða um hann. Ég segi ekkert um leikmenn sem eru ekki hjá okkur. Annars er City ekki að fara að kaupa neinn leikmann í dag," sagði Maresca brosandi.
Miðjumaðurinn Rodri.

Miðjumaðurinn Rodri.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.