14.08.26 - 11:52
Kári Snorrason
Mikill áhugi á Markúsi Páli - „Vonumst til að hann klári tímabilið“

Lið í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Póllandi á eftir Markúsi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað níu mörk í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Greint var frá því á Fótbolta.net fyrr í vikunni að áhugi væri á Skagamanninum, Markúsi Páli Ellertssyni, erlendis frá.
Þar var danska úrvalsdeildarfélagið Silkeborg, svissnesku meistararnir í Thun og Västerås í Svíþjóð meðal liða sem sögð voru á eftir Markúsi.
Danski miðillinn Tipsbladet fjallaði um grein Fótbolta.net og hafði samband við Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóra ÍA, og spurði hann út í leikmanninn eftirsótta.

TENGT EFNI
Erlend félög horfa til Markúsar
„Markús hefur átt frábært tímabil með okkur. Hann er ungur leikmaður með hátt þak. Frammistaða hans á tímabilinu hefur eðlilega vakið áhuga erlendra liða,“ segir Ingimar.
Markús Páll er sóknarmaður sem fæddur er 2006. Hann er uppalinn í Fram en var sóttur til Skagans frá Triestina á Ítalíu í vetur. Hann hefur skorað níu mörk í Bestu deildinni.
„Við vonumst til að Markús klári tímabilið með okkur enda er hann stór hlekkur í okkar liði. Samt sem áður er mikill áhugi á honum frá félögum í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Póllandi.
Við gerum okkur grein fyrir því að það eru miklar vangaveltur um framtíð hans þessa stundina. Við þurfum hreinlega að bíða og sjá hvernig mál þróast á komandi dögum og vikum,“ segir Ingimar að lokum í samtali við Tipsbladet.