Fotbolti.net
14.08.26 - 12:10
Kári Snorrason

Fabregas á eftir öðrum leikmanni Chelsea

Delap átti erfitt uppdráttar með Chelsea á síðasta ári.

Delap átti erfitt uppdráttar með Chelsea á síðasta ári.

Canon

Mynd: EPA

Como er á höttunum eftir Liam Delap, sóknarmanni Chelsea. Ítalska félagið gekk nýverið frá kaupum á Trevoh Chalobah frá Lundúnaliðinu.

Delap, sem er 23 ára, gekk til liðs við Chelsea fyrir ári síðan fyrir 30 milljónir punda frá Ipswich. Hann átti erfitt uppdráttar með Chelsea á síðasta ári en hann skoraði eitt mark í 28 leikjum með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Greint hefur frá því að Chelsea setji 50 milljóna punda verðmiða á enska framherjann. Everton og Nottingham Forest hafa jafnframt augastað á Delap.

Í sumar hefur Chelsea sótt Danny Welbeck og þá hefur Nicolas Jackson snúið aftur eftir lán hjá Bayern Munchen í Þýskalandi.
Cesc Fabregas, fyrrverandi leikmaður Chelsea, er stjóri Como. Hann var orðaður við stjórastól Chelsea áður en Xabi Alonso tók við liðinu.

Fabregas náði eftirtektaverðum árangri með liðið á síðasta ári sem endaði í 4. sæti í Serie A.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.