Norwich tekur á móti Manchester City í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Kevin De Bruyne hefur farið gríðarlega vel af stað með Englandsmeisturunum en hann byrjar á bekknum í dag. Ilkay Gündogan tekur hans stöðu á miðjunni.
Heimamenn í Norwich eru án níu leikmanna vegna meiðsla og eru nokkrir að spila úr stöðu í dag. Þeir hefðu ekki náð í fullan hóp án þess að vera með tvo varamarkverði á bekknum.
Þetta verður afar erfiður leikur fyrir Norwich sem er með þrjú stig eftir fyrstu fjórar umferðir tímabilsins. Man CIty er með tíu stig.
Norwich: Krul, Byram, Amadou, Godfrey, Lewis, McLean, Tettey, Buendia, Stiepermann, Cantwell, Pukki
Varamenn: Fahrmann, McGovern, Drmic, Hanley, Idah, Heise, Srbeny.
Man City: Ederson, Walker, Stones, Otamendi, Zinchenko, Gundogan, Rodrigo, Silva, Bernardo, Aguero, Sterling
Varamenn: Bravo, Cancelo, Fernandinho, Foden, De Bruyne, Mahrez, Jesus.
Athugasemdir