Fotbolti.net
14.09.19 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Stuðningsmenn FH og Víkings með upphitanir í dag

Jón Ragnar Jónsson og Friðrik Dór Jónsson taka lagið í Kaplakrika fyrir leik.

Jón Ragnar Jónsson og Friðrik Dór Jónsson taka lagið í Kaplakrika fyrir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
FH og Víkingur mætast í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli klukkan 17:00 í dag.

Bæði félög verða með upphitanir frá klukkan 14:00. FH-ingar hittast í Kaplakrika og Víkingar í Víkinni en fríar rútuferðir verða á völlinn frá báðum stöðum.
Í Kaplakrika verður lokahóf hjá 3. 4. og 5. flokki karla og kvenna, bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór hita upp raddböndin með söng og sannkölluðu FH peppi! Að auki verður andlitsmálning, knattþrautir og sjóðheitar pylsur!

Í Víkinni verða veitingar og ýmis varningur til sölu. Leiktæki fyrir börnin verða á staðnum. Baddi úr Jeff Who? mætir á svæðið með kassagítarinn og tekur m.a. hið goðsagnakennda BARFLY!

Smelltu hér til að kaupa miða á úrslitaleikinn
Bjarni Lárus Hall tekur lagið í Víkinni.

Bjarni Lárus Hall tekur lagið í Víkinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.