Fotbolti.net
14.09.20 - 20:30
Aksentije Milisic

Varane um mistökin gegn City: Tók nokkra daga að komast yfir þetta

Varane í leiknum umtalaða.

Varane í leiknum umtalaða.

Canon

Mynd: Getty Images

Raphael Varane, varnarmaður Real Madrid, hefur viðurkennt að hann var í nokkra daga að komast yfir mistök sem hann gerði gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili.
Varane gerði sig sekan um tvö slæm mistök í síðari leiknum í 16 liða úrslitunum sem City nýtti sér vel og skoraði tvö mörk. Næstu dagar eftir þennan leik voru Varane erfiðir.

„Þetta er mjög slæm minning á mínum ferli. Þetta var mjög erfiður leikur fyrir mig," sagði Varane.

„Ég vildi strax taka ábyrgð eftir leikinn. Ég gerði mistök sem kostuðu okkur leikinn. Dagarnir eftir þennan leik voru erfiðir, en við erum atvinnumenn og verðum að horfa fram á veginn."

Real Madrid komst í kjölfarið ekki til Lissabon þar sem restin af Meistaradeildinni fór fram. City fór áfram en datt út í 8-liða úrslitum gegn Lyon.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.