Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. september 2021 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Elliott í aðgerð í dag - Leeds áfrýjar spjaldinu
Mynd: EPA
Jurgen Klopp hefur staðfest að Harvey Elliott fer í aðgerð vegna ökklameiðslanna sem hann varð fyrir á sunnudag eftir tæklingu frá Pascal Struijk. Elliott fór úr lið og verður frá í talsverðan tíma.

Struijk fékk rauða spjaldið fyrir tæklingun en Leeds hefur áfrýjað spjaldinu.

„Hann er í London og fer í aðgerð í dag," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

„Þetta var ekki Struijk að kenna. Þetta hefði ekki átt að vera rautt spjald en svona gerist í fótbolta. Ég mun 100% koma sterkari til baka," segir Elliott um atvikið.

Sjá einnig:
Neville: Struijk átti ekki að fá rautt


Athugasemdir
banner
banner
banner