Fotbolti.net
20.09.26 - 22:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Milan og Juventus aftur á sigurbraut

Ítalía: Milan og Juventus aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: EPA

Milan komst aftur á sigurbraut með sigri á Lecce í kvöld. Liðið hafði gert tvö jafntefli í röð í deildinni og tapaði gegn Benfica í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í vikunni.

Christian Pulisic kom Milan yfir eftir glæsilega sendingu frá Strahinja Pavlovic yfir vörn Lecce. Adrien Rabiot bætti öðru markinu en það var laglegt liðsmark þar sem boltinn fór manna á milli áður en Rabiot batt endahnútinn með skoti úr teignum. Diego Moreira innsiglaði síðan sigurinn.

Þá komst Juventus einnig afutr á sigurbraut í deildinni með sigri á Atalanta. Juventus gerði jafntefli gegn Milan og tapaði síðan gegn Sassuolo.

Francisco Conceicao kom liðinu yfir með skoti úr teignum og Bremer innsiglaði sigurinn.
Milan 3 - 0 Lecce
1-0 Christian Pulisic ('14 )
2-0 Adrien Rabiot ('61 )
3-0 Diego Moreira ('73 )

Juventus 2 - 0 Atalanta
1-0 Francisco Conceicao ('28 )
2-0 Bremer ('77 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.