Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. september 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Goretzka búinn að skrifa undir nýjan samning
Mynd: Getty Images
Leon Goretzka er búinn að skrifa undir nýjan samning við FC Bayern sem gildir til 2026. Bayern München staðfesti þetta í gær, nokkrum vikum eftir að hafa samið einnig við Joshua Kimmich.

Goretzka og Kimmich áttu báðir í launadeilum við þýska stórveldið sem og aðrir leikmenn og voru þá sérstaklega ósáttir við launapakka Leroy Sane sem þeir töldu ekki vera í samræmi við sinn eigin.

Hinn 26 ára gamli Goretzka hefur verið lykilmaður í liði Bayern undanfarin ár og á 117 leiki að baki fyrir félagið.

Goretzka þykir einn af betri miðjumönnum heims í dag og hefur skorað 14 mörk í 38 landsleikjum með Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner