Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. september 2022 16:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Margir lykilmenn samningslausir hjá HK - Færri hjá Fylki
Lengjudeildin
Samningur Birkis rennur út eftir tímabilið
Samningur Birkis rennur út eftir tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sveinn er einn af þremur í liði Fylkis sem verða samningslausir eftir tímabilið.
Orri Sveinn er einn af þremur í liði Fylkis sem verða samningslausir eftir tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir og HK verða í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Fylkir tryggði sér sigur í Lengjudeildinni um liðna helgi og HK var þegar búið að tryggja sér sæti í efstu deild fyrir liðna umferð.

Enn er ein umferð eftir af deildinni.

Í dag var samningsstaða leikmanna liðanna skoðuð. Þar kemur í ljós að talsvert fleiri lykilmenn HK eru að renna út á samningi heldur en hjá Fylki.

Horft var í þá leikmenn sem hafa spilað með liðunum í Lengjudeildinni í sumar. Fjórir þeirra voru í liði ársins í Lengjudeildinni.

Leikmenn Fylkis sem eru að renna út á samningi:
Orri Sveinn Stefánsson, 19 leikir (1996)
*Mathias Laursen, 19 leikir (1998)

Leikmenn HK sem eru að renna út á samningi:
Ásgeir Marteinsson, 21 leikur (1994)
*Ívar Örn Jónsson, 20 leikir (1994)
*Bruno Soares, 18 leikir (1988)
*Leifur Andri Leifsson, 17 leikir (1989)
Birkir Valur Jónsson, 17 leikir (1998)
**Atli Arnarson, 15 leikir (1993)
Bjarni Páll Linnet Runólfsson, 15 leikir (1996)
Ólafur Örn Eyjólfsson, 7 leikir (1994)
Bjarni Gunnarsson, 2 leikir (1993)

Aðrir úr liði ársins í Lengjudeildinni sem eru að renna út á samningi:
**Jón Ívan Rivine, 21 leikur (1996)

*Var í liði ársins
**Var á bekknum í liði ársins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner