14.09.26 - 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Bayern lenti undir í tvígang - Öruggt hjá Midtjylland

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: EPA

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víðsvegar um Evrópu, þar sem Glódís Perla Viggósdóttir bar fyrirliðabandið í mikilvægum endurkomusigri Þýskalandsmeistara FC Bayern.
Bayern heimsótti Bayer Leverkusen og komust heimakonur yfir í tvígang en í bæði skiptin tókst Bæjörum að jafna. Staðan var 2-2 allt þar til hin nítján ára gamla Alara Sehitler setti sigurmarkið á lokamínútunum.
Bayern deilir toppsæti þýsku deildarinnar með Wolfsburg þar sem bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins.
Í karlaflokki varði Elías Rafn Ólafsson mark Midtjylland í frábærum 4-1 sigri gegn Bröndby. Midtjylland er eina taplausa liðið í efstu deild danska boltans og situr í öðru sæti, með 18 stig eftir 8 umferðir. Elías og félagar eru þremur stigum á eftir toppliði FC Kaupmannahafnar.
Í efstu deild í Svíþjóð var Róbert Frosti Þorkelsson ekki í hóp hjá GAIS vegna meiðsla er liðsfélagar hans töpuðu 2-0 gegn Djurgården. GAIS er með 27 stig eftir 21 umferð, átta stigum frá fallsæti.
Leverkusen 2 - 3 Bayern
Midtjylland 4 - 1 Bröndby
Djurgarden 2 - 0 GAIS
Jong PSV 1 - 1 Jong AZ
Aalesund2 3 - 2 Spjelkavik