14.09.26 - 16:35
Elvar Geir Magnússon
VAR dómararnir í Manchesterslagnum í skammarkrókinn

Erling Haaland skoraði eina mark leiksins.

Mynd: EPA

Howard Webb er yfirmaður dómaramála.

Matt Donohue, sem var VAR-myndbandsdómari í leik Manchester United og Manchester City, hefur ekki verið valinn til að dæma í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.
Hann hefur verið settur í kælingu ásamt Blake Antrobus sem var VAR-aðstoðardómari á leiknum. Þeir gerðu risastór mistök þegar sigurmark Erling Haaland fékk að standa.

TENGT EFNI
Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu
Donohue hefur starfað í öllum umferðum ensku úrvalsdeildarinnar hingað til en verður í skammarkróknum um næstu helgi. Þá starfar hann ekki í deildabikarleikjunum í vikunni.
The Athletic segir að Howard Webb, yfirmaður dómaramála, hafi tekið þá ákvörðun að setja þá til hliðar og þeir snúa ekki aftur fyrr en eftir næsta landsleikjaglugga.
Markið sem Haaland skoraði reyndist eina mark leiksins. Það var upphaflega dæmd rangstaða en eftir VAR skoðun var ákvörðuninni ranglega snúið við.