Fotbolti.net
14.09.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Heckingbottom fyrstur til að fjúka í Championship (Staðfest)

Heckingbottom fyrstur til að fjúka í Championship (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Paul Heckingbottom er fyrsti þjálfarinn til að missa starf sitt á nýju deildartímabili í ensku Championship deildinni. Hann er rekinn eftir slæma byrjun með Preston North End, sem er aðeins með þrjú stig eftir sjö fyrstu umferðirnar.
Tap á heimavelli gegn nýliðum Lincoln City um helgina var dropinn sem fyllti mælinn. Heckingbottom er 49 ára gamall og starfaði sem aðalþjálfari Preston í rétt rúmlega tvö ár.

Preston deilir neðsta sæti deildarinnar með Burnley, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og er eitt af aðeins tveimur liðum sem eiga enn eftir að vinna deildarleik á tímabilinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.