Fotbolti.net
14.09.26 - 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Malen óstöðvandi - Como eltir

Ítalía: Malen óstöðvandi - Como eltir
Canon

Mynd: EPA

Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í efstu deild ítalska boltans þar sem AS Roma heldur toppsæti deildarinnar eftir fjórða sigurinn í fjórum leikjum.
Hollendingurinn Donyell Malen virðist vera óstöðvandi. Hann byrjaði á að gera rangstöðumark á útivelli gegn Torino í dag en náði svo forystunni fyrir sína menn á 40. mínútu. Malen skoraði af miklu harðfylgi eftir undirbúning frá Paulo Dybala.

Rómverjar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en leikurinn jafnaðist út eftir leikhlé. Torino tókst þó ekki að jafna leikinn og þess í stað innsiglaði Niccoló Pisilli sigur gestanna í uppbótartíma. Lokatölur 0-2.

Roma er með fullt hús stiga, tveimur stigum meira en lærlingar Cesc Fábregas í liði Como sem unnu einnig í dag.

Como var talsvert sterkara liðið á heimavelli gegn Parma og skoraði Jacobo Ramón fyrsta mark leiksins eftir góða fyrirgjöf frá Nico Paz á 23. mínútu.

Como var áfram sterkari aðilinn en tókst ekki að tvöfalda forystuna fyrr en vinstri bakvörðurinn Kaiki setti boltann í netið eftir mikinn atgang á lokakaflanum.

Gestunum frá Parma tókst að minnka muninn með marki úr skyndisókn í uppbótartíma eftir mistök hjá Kaiki í varnarlínunni og kom Robert Sánchez engum vörnum við á milli stanganna.

Torino 0 - 2 Roma
0-1 Donyell Malen ('40 )
0-2 Niccolo Pisilli ('93 )

Como 2 - 1 Parma
1-0 Jacobo Ramon ('23 )
2-0 Kaiki ('83 )
2-1 David Romero ('92)
Ítalía: Malen óstöðvandi - Como eltir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.