14.10.13 - 16:14
Elvar Geir Magnússon
Kristinn Ingi gerði fjögurra ára samning við Val (Staðfest)

Kristinn Ingi Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kristinn Ingi Halldórsson er genginn í raðir Vals en hann gerir fjögurra ára samning við Hlíðarendafélagið.
„Það er kannski kominn tími fyrir mig að breyta til. Ég hef verið lengi í Fram. Síðasta tímabil var erfitt fyrir mig vegna meiðsla en ég er ákveðinn í því að sýna hvað ég get. Ég er mjög spenntur fyrir þessu,\" sagði Kristinn við Fótbolta.net í dag.

Útlit er fyrir talsverðar breytingar á leikmannahópi Fram en Almarr Ormarsson er sterklega orðaður við KR og Sam Hewson hefur verið orðaður við FH.
Tilkynning frá Val:
Knattspyrnufélögin Valur og Fram hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Kristins Inga Halldórssonar í Val.
Kristinn Ingi sem er 24 ára gamall gerir fjögurra ára samning við Val eða út tímabilið 2017. Kristinn Ingi hefur spilað 97 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 23 mörk, einnig á hann 6 leiki með yngri landsliðum Íslands
Kristinn Ingi er sterkur og kraftmikill leikmaður sem getur leikið allar sóknarstöður. Knattspyrnufélagið Valur býður Kristinn Inga velkomin á Hlíðarenda og um leið þakkar félagið forráðarmönnum knattspyrnuliðs Fram fyrir faglegar viðræður á milli félaganna.