Fotbolti.net
14.10.21 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Ranieri: Ég er ennþá svo ungur

Ranieri á fréttamannafundi í gær.

Ranieri á fréttamannafundi í gær.

Canon

Mynd: Watford

Claudio Ranieri stýrir Watford í fyrsta sinn á laugardag þegar leikið verður gegn Liverpool, fjórum dögum áður en hann verður 70 ára.

Ranieri segist vera við hestaheilsu og að hann gæti bætt met Roy Hodgson sem hætti að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni tveimur mánuðum fyrir 74 ára afmælisdaginn.

Hodgson hætti hjá Crystal Palace í maí. Gæti Ranieri starfað eins lengi og hann?
„Af hverju ekki? Ég er ennþá svo ungur og við góða heilsu," segir Ranieri. Hann stýrði Leicester til Englandsmeistaratitilsins sögufræga 2016.

„Fótbolti er mitt líf. Ef mér líður vel og er með neistann og orkuna til að gefa leikmönnum mínum þá held ég áfram."

Watford er fjórða úrvalsdeildarliðið á Englandi sem Ranieri stýrir. Hann var hjá Chelsea, Leicester og Fulham.

Ranieri fékk tveggja ára samning hjá Watford en hann þekkir vel ítölsku Pozzo fjölskylduna sem á félagið og hversu miskunnarlaus hún er þegar kemur að því að reka stjóra ef liðið stenst ekki þær miklu væntingar sem gerðar eru.

„Á Ítalíu er talið eðlilegt að skipta oft um þjálfara. Hér á Englandi er líka talsvert um breytingar, segir Ranieri.

Hann er feikilega vinsæll meðal enskra fjölmiðlamanna enda oft stutt í brosið og húmorinn á fréttamannafundum.

„Ég get hlegið eins mikið og ég vil. En ef ég vinn ekki leiki þá stoppar hláturinn."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.