Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. nóvember 2020 09:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hamren: Mín ákvörðun að hætta
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var mín ákvörðun að hætta," sagði Erik Hamren, þjálfari karlalandsliðsins, á fréttamannafundi í dag.

„Markmiðið var alltaf að komast á EM og núna mun einhver nýr koma inn sem fer áfram með liðið."

Hamren tók við íslenska liðinu eftir HM í Rússlandi árið 2018. Hann stýrði liðinu í fyrstu Þjóðadeildinni sem og í undankeppninni fyrir EM 2020.

Íslenska liðið komst í úrslitaleik umspilsins um að fara á EM en tapaði gegn Ungverjum á fimmtudag og þá var ljóst að markmiðið um að fara á EM næðist ekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner