Fotbolti.net
16.11.26 - 20:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
- Laugardalsvelli

Sterkur endir en gætu verið í betri stöðu - „Miklu betra lið en ég hélt"

Arnar fyrir leikinn í kvöld.

Arnar fyrir leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Þetta var alls ekki einn besti leikur í heimi en það voru ákveðin móment sem voru mjög góð," sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson eftir 3-0 sigur gegn Lúxemborg í síðasta leiknum í C-deild Þjóðadeildarinnar.

„Fyrstu 20 mínúturnar vorum við aðeins að finna okkur í pressunni. Þeir eru tæknilega góðir í fyrsta og öðrum fasa uppspilsins en þegar þeir komast ofar á völlinn vantar ákveðin gæði til að klára sóknirnar. Við vorum hins vegar mjög fljótir til baka og góðir í að verja hjartað okkar."
„Við áttum líka góð móment í sóknarleiknum. Mér fannst við oft vinna boltann í pressunni og skapa okkur tækifæri. Leikurinn breyttist svo eftir fyrsta markið og þá leið öllum betur. Þetta varð tiltölulega öruggur sigur í lokin."

„Ég hef talað um það lengi að opni varnarleikurinn okkar er gríðarlega sterkur. Þegar við fáum á okkur færi er það frekar vegna þess að við missum boltann og lendum í skyndisóknum. Við erum á góðri leið með varnarleikinn okkar, pressan er mjög aggressíf og sterk. Svo erum við með gæðaleikmenn sem geta haldið vel í boltann og skapað góð tækifæri."

Arnar segir að sigurinn loki árinu vel.

„Mér finnst þessi sigur loka þessu góða ári mjög vel. Við spiluðum um tíu leiki og töpuðum aðeins tveimur, gegn Japan og Argentínu, og það voru líka mjög góðir leikir. Við getum verið ánægðir með hvernig árið hefur þróast. Vonandi er þetta bara rétt að byrja og gefur okkur innspýtingu fyrir 2027, þegar við ætlum að gera alvöru atlögu að því að komast á stórmót."

Svekktur að skora ekki meira í kuldanum
Ísland var með algjöra stjórn á leiknum og hefði getað unnið hann stærra.

„Ég er alltaf svekktur eftir hvern einasta leik þegar okkur tekst ekki að nýta færin okkar. Leikurinn lognaðist einhvern veginn út af síðustu 25 mínúturnar. Það var eins og menn væru búnir að gera nóg og það var svolítið þeirra að taka leikinn til okkar, sem þeir gerðu ekki. Þeir fengu eiginlega engin færi og við fengum nokkur upphlaup þar sem öllum langaði að skora. Það vantaði kannski aðeins meiri yfirvegun í lokasendingarnar til að koma okkur í enn betri færi. En þetta hafðist og þegar upp er staðið er þetta 3-0 sigur og hreint lak. Það er rosalega erfitt að kvarta yfir því í landsliðsfótbolta," sagði Arnar.

Það var gríðarlega kalt á Laugardalsvelli í kvöld.

„Mér var alveg drullukalt en ég held að leikmenn hafi verið fljótir að ná kuldanum úr sér. Það var samt greinilegt að þetta var svolítið mistakaleikur. Það voru margir tæknifeilar og menn voru að reyna að átta sig á hraðanum, bæði á boltanum og því hvernig hann myndi lenda og rúlla. Stundum gekk það vel og kom okkur til hagsbóta þegar við náðum hröðum sóknum. En það voru ansi margar sendingavillur, langar sendingar sem fóru of langt eða of stutt. Miðað við aðstæður var þetta samt hinn fínasti leikur. Hann hentaði okkur klárlega betur en þeim vegna þess að við erum sterkara lið, sérstaklega í gagnpressunni, sem gaf okkur möguleika á að sækja hratt."

Eistarnir reyndust okkur erfiðir
Í heildartöflunni endaði Ísland í þriðja sæti C-deildarinnar. Það voru tvö jafntefli gegn Eistlandi sem fóru með það að við enduðum ofar. Það gæti haft áhrif á það hvort við komumst í umspil fyrir lokakeppni EM en Þjóðadeildin virkar sem ákveðin varaleið inn í undankeppnina. Sigur í riðlinum tryggir það samt sem áður að Ísland er í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið er í undankeppnina.

„Maður getur auðvitað hugsað til þess að við hefðum getað fengið fleiri stig og komið okkur í betri stöðu til að eiga möguleika á umspili. En við náðum markmiðinu okkar og það er alltaf gott fyrir íþróttamann að setja sér markmið og ná þeim. Við náðum markmiðinu nokkurn veginn með stæl þó Eistarnir hafi verið 'pain in the ass'," sagði Arnar.

„Þeir komu mér eiginlega ótrúlega á óvart og voru miklu betra lið en ég hélt. Þeir munu stríða mörgum liðum á næstu árum. Við höfum skorað fullt af mörkum og aðeins fengið eitt á okkur. Það er mjög sterkt og eitthvað sem við getum byggt ofan á. Við fengum líka mjög fá færi á okkur í öllum þessum leikjum."

„Heildarbragurinn á liðinu er miklu þroskaðri en í fyrra. Þá vorum við kannski að gefa aðeins fleiri færi á okkur og vera barnalegri. Núna er þetta stöðug þróun. Í hvert skipti sem við hittumst sjáum við hvað við gerum vel og hvað við þurfum að bæta. Vonandi fækkar slæmu hlutunum og góðu hlutunum fjölgar svo við getum tekið enn stærri skref á næsta ári," sagði Arnar.

Næsta verkefni að komast á EM
Stutt er í að það verði dregið í undankeppni EM og verður það spennandi verkefni að takast á við.

„Það er náttúrulega draumurinn," sagði Arnar. „Mér finnst vera góður stígandi í liðinu. Við höfum spilað marga flotta leiki. Við féllum vissulega á prófinu gegn Úkraínu en það voru alls ekki slæmir leikir. Svo áttum við frábæra leiki gegn Frökkum.

„Þá kom frábær leikur gegn Japan varnarlega séð og við stóðum okkur einnig vel gegn Argentínu. Mér finnst því margt líta mjög vel út og það er góður stígandi í þessu."
Ísland fagnar marki í leiknum.

Ísland fagnar marki í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leikinn í kvöld.

Fyrir leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það var kalt á Laugardalsvelli í kvöld.

Það var kalt á Laugardalsvelli í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leik gegn Eistlandi á Laugardalsvelli.

Úr leik gegn Eistlandi á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sterkur endir en gætu verið í betri stöðu - „Miklu betra lið en ég hélt"
Canon

Mynd: KSÍ

Á næsta ári verður undankeppni fyrir EM.

Á næsta ári verður undankeppni fyrir EM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.