Fotbolti.net
14.12.13 - 21:45
Brynjar Ingi Erluson

Steve Clarke látinn fara frá WBA (Staðfest)

Steve Clarke látinn fara frá WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið West Bromwich Albion hefur sagt Steve Clarke, knattspyrnustjóra liðsins, upp störfum en félagið staðfesti þetta fyrir skömmu.
Clarke var ráðinn knattspyrnustjóri WBA í júní 2012 en hann tók þá við af Roy Hodgson en Clarke var áður aðstoðarþjálfari Liverpool meðal annars.

Clarke var þá einnig aðstoðarþjálfari hjá Chelsea og West Ham United en hann lék með Chelsea frá árunum 1987 til 1998.

Liðinu hefur gengið afar illa á þessari leiktíð og hefur það tapað síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni en WBA situr í 16. sæti deildarinnar.

WBA staðfesti í dag að Clarke hafi verið sagt upp störfum en þetta var tilkynnt eftir að liðið tapaði fyrir Cardiff City í dag með einu marki gegn engu.

Óvíst er hver tekur við félaginu en Roberto Di Matteo, fyrrum knattspyrnustjóri liðsins og fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea hefur strax verið nefndur til sögunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.