Fotbolti.net
14.12.15 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar fá markvörð frá Bandaríkjunum (Staðfest)

FH-ingar fá markvörð frá Bandaríkjunum (Staðfest)
Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
Nýliðar FH í Pepsideild kvenna hafa samið við bandaríska markvörðinn Jeannette Williams. Hún hefur undanfarin þrjú sumur leikið með Víkingi Ólafsvík í 1. deild.
Að sögn Orra Þórðarsonar þjálfara meistaraflokks kvenna hjá FH er Jeannette mikill liðsstyrkur: „Við spiluðum tvisvar við Víking í sumar og Jeannette var frábær í báðum leikjum. Hún er snögg, kröftug, tæknilega góð og skilar boltanum vel frá sér.\"

Árni Rúnar Þorvaldsson formaður kvennaráðs FH segir ljóst að baráttan verði hörð í Pepsídeildinni næsta sumar og FH-ingar ætli að styrkja lið sitt enn frekar: „Við erum með efnilegt lið og góða breidd en ætlum að bæta við okkur 2-3 öflugum leikmönnum í viðbót.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.