Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 14. desember 2019 20:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aron Bjarna í byrjunarliði í jafntefli Ujpest
Aron Bjarnason.
Aron Bjarnason.
Mynd: Ujpest
Aron Bjarnason og félagar í Ujpest í Ungverjalandi léku sinni síðasta leik á árinu í kvöld.

Ujpest heimsótti Budapest Honved, ekkert var skorað í leiknum og markalaust jafntefli því niðurstaðan. Aron Bjarnason var í byrjunarliði Ujpest.

Ungverska deildin fer nú í frí og hefst ekki aftur fyrr en í lok janúar. Aron og félagar fara í fríið í 5. sæti deildarinnar.

Lommel, lið Kolbeins Þórðarsonar lék í Belgíu í dag, niðurstaðan þar var 3-1 tap gegn Royal Excelsior Virton.
Athugasemdir
banner
banner