14.12.21 - 18:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Amanda farin frá Vålerenga (Staðfest)

Amanda verður ekki áfram hjá Vålerenga.

Mynd: Guðmundur Svansson

Amanda verður ekki áfram hjá Vålerenga.

Mynd: Guðmundur Svansson

Norska félagið Vålerenga hefur staðfest að íslenska landsliðskonan Amanda Andradóttir verði ekki áfram hjá félaginu.
„Við komumst að samkomulagi um að fara í sitthvora áttina. Við óskum Amöndu góðs gengis í framtíðinni," segir Egil Ødegaard, yfirmaður knattspyrnumála hjá Vålerenga.
Amanda, sem er 17 ára gömul, spilaði eitt tímabil með Vålerenga, einu sterkasta liði Noregs. Hún skoraði fjögur mörk í 20 leikjum fyrir félagið. Hún átti meðal annars mark ársins í norsku úrvalsdeildinni.
Hún ólst upp hjá Val og Víkingi en fór 15 ára gömul í atvinnumennsku til Danmerkur. Þar í landi lék honum með Fortuna Hjörring og Nordsjælland. Hún fór svo til Vålerenga fyrir síðustu leiktíð.
Það verður spennandi að sjá hvert hennar næsta skref verður. Samkvæmt heimildum 433.is, þá er þessi efnilegi leikmaður að fara í sterkari deild.