14.12.21 - 00:02
Victor Pálsson
Búið að fresta leik Man Utd og Brentford (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United er búið að staðfesta það að leikur liðsins við Brentford á morgun fari ekki fram.
Þetta var staðfest nú seint í kvöld en fyrr í kvöld var greint frá því að mikil óvissa væri í kringum hvort leikurinn færi fram eða ekki.
Covid-19 smit komu upp í herbúðum Man Utd á dögunum og er þess vegna búið að ákveða að fresta viðureigninni.
Leikurinn átti að hefjast klukkan 19:30 á morgun og á heimavelli Brentford.
Æfingasvæði Man Utd hefur verið lokað síðustu 24 tímana eftir að smitin komu upp.