Fotbolti.net
14.12.21 - 15:33
Elvar Geir Magnússon

Sókndjarfur bakvörður frá Venesúela í Fram (Staðfest)

 Jesús Yendis.

Jesús Yendis.

Canon

Mynd: Fram

Nýliðar Fram í efstu deild hafa samið við sóknarsinnaðan bakvörð frá Venesúela, hinn 23 ára Jesús Yendis.

Hann er vinstri bakvörður sem getur einnig leikið sem kantmaður og kemur frá CD Hermanos Colmenarez sem er nýliði í efstu deild í Venesúela.
„Jesús er sókndjarfur og beinskeyttur bakvörður sem býr yfir miklum hraða. Hann er góður á boltanum og með góðar fyrirgjafir en jafnframt öflugur varnarmaður. Þrátt fyrir ungan aldur býr Jesús yfir mikilli reynslu úr deildinni í Venezuela," segir í tilkynningu Fram.

Jón Sveinsson þjálfari Fram er ánægður með að hafa tryggt sér þjónustu Jesús Yendis næstu tvö árin.

„Jesús er spennandi viðbót við góðan hóp hjá okkur. Hraður og kröftugur vinstri bakvörður sem mun styrkja okkur," segir Jón.

Jesús er spenntur fyrir tækifærinu að koma til Íslands að leika fótbolta.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til þess að skapa mér nafn utan Venesúela. Ég er mjög ánægður og spenntur yfir þessu tækifæri og stoltur af því trausti sem að Fram sýnir mér. Ég mun leggja mig allan fram fyrir félagið og stuðningsmennina."

Fram

Komnir
Jesús Yendis frá CD Hermanos Colmenarez
Tiago Fernandes frá Grindavík

Farnir
Kyle McLagan til Víkings R.
Haraldur Einar Ásgrímsson í FH
Aron Kári Aðalsteinsson til Breiðabliks (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.