14.12.21 - 09:00
Victor Pálsson
Van der Sar um Henderson: Ekkert vit í þessu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Edwin van der Sar, stjórnarformaður Ajax, hefur tjáð sig um sögusagnirnar um markvörðinn Dean Henderson.
Henderson er orðaður við hollenska félagið þessa dagana en hann spilar með Manchester United á Englandi.
Miðað við orð Van der Sar eru engar líkur á að þessi skipti eigi sér stað en ahnn talar um kjaftasögur.
„Ég hef heyrt að þú getir borgað tvö þúsund evrur á mánuði og borgað þar með fjölmiðlum til að búa til sögur um leikmenn," sagði Van der Sar.
„Ég er að tala um samfélagsmiðla og þess háttar. Það er alltaf verið að orða þig við leikmenn, hvort sem þeir eru frá Suður Ameríku eða Evrópu. Það er ekkert vit í þessu."