15.01.13 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Ben Everson til York (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Ben Everson, sem lék með Breiðabliki og Tindastóli síðastliðið sumar, hefur samið við York City á Englandi.
York leikur í ensku D-deildinni en liðið er í fimmtánda sæti þar í augnablikinu.

,,Ég vil þakka öllum hjá Tindastóli og Breiðabliki fyrir að gefa mér tækifæri á að spila á Íslandi. Ég er mjög þakklátur fyrir það og ég naut tímans á Íslandi,\" sagði Ben við Fótbolta.net í dag.
Ben er 25 ára gamall Englendingur en hann gekk til liðs við Tindastól síðastliðið vor.
Þar skoraði Ben sjö mörk í tíu leikjum áður en Breiðablik fékk hann í sínar raðir í júlí. Hann skoraði eitt mark í níu leikjum í Pepsi-deildinni með Breiðabliki.
Ben er uppalinn hjá Middlesbrough en hann hefur einnig leikið í Bandaríkjunum á ferli sínum.