Fotbolti.net
15.01.13 - 14:28
Magnús Már Einarsson

Lucas Piazon frá Chelsea til Malaga (Staðfest)

Lucas Piazon frá Chelsea til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Malaga hefur fengið framherjann Lucas Piaszon á láni frá Chelsea út tímabilið.

Þessi 18 ára gamli leikmaður kom til Chelsea frá Sao Paulo fyrir ári síðan.

Síðan þá hefur hann einungis leikið tvo leiki í deildabikarnum og einn leik í ensku úrvalsdeildinni.
,,Við höfum náð samkomulagi við Malaga um að hann fari til þeirra á láni út tímabilið,\" staðfesti Rafael Benítez stjóri Chelsea í dag.

Benítez hefur einnig útilokað að Chelsea muni kalla Romelu Lukaku til baka úr láni frá WBA en hann hefur skorað níu mörk í 22 leikjum á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.