Fotbolti.net
15.01.13 - 21:30
Magnús Már Einarsson

Ray Anthony Jónsson í Keflavík (Staðfest)

Ray Anthony Jónsson.

Ray Anthony Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Keflavík hefur fengið bakvörðinn Ray Anthony Jónsson í sínar raðir frá Grindavík en þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í kvöld.

Ray er fyrsti leikmaðurinn sem Keflvíkingar semja við fyrir komandi tímabil en frekari fregna er að vænta af leikmannamálum á næstunni að því er fram kemur á vef Víkurfrétta.

Ray, sem er 33 ára gamall, hefur leikið með Grindvíkingum lengst af á sínum ferli en hann á að baki 182 leiki í efstu deild.
Móðir Ray er frá Filippseyjum og árið 2010 var hann valinn í landsliðið þar í landi í fyrsta skipti.

Síðan þá hefur hann alls leikið 29 landsleiki með landsliði Filippseyja.

Heimild: Víkurfréttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.