Fotbolti.net
15.01.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Roland Lamah í Swansea (Staðfest)

Roland Lamah í Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur fengið belgíska kantmanninn Roland Lamah á láni frá spænska félaginu Osasuna.

Lánssamningurinn gildir í eitt og hálft ár eða fram á sumar árið 2014.
,,Þetta er frábært tækifæri fyrir mig og ég er ánægður með að vera hér,\" sagði hinn 25 ára gamli Lamah eftir að gengið var frá samningum.

,,Ég þekki nokkra leikmenn hér og ég veit að Swansea er fjölskyldufélag sem hentar leikstíl mínum. Að spila í ensku úrvalsdeildinni er draumur og það er líka frábært að fá að spila undir stjórn Michael Laudrup.\"

Lamah gæti leikið sinn fyrsta leik með Swansea á laugardag þegar liðið tekur á móti Stoke.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.