Fotbolti.net
15.01.13 - 18:30
Hafliði Breiðfjörð

Sævar Freyr Alexandersson í Leikni (Staðfest)

Sævar Freyr Alexandersson í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

Sævar Freyr Alexandersson hefur gengið í raðir 1. deildarfélagsins Leiknis í Breiðholti frá Aftureldingu en hann hefur leikið í Mosfellsbænum nánast allan sinn feril. Sævar er bróðir Freys Alexanderssonar sem er annar af þjálfurum Leiknis.
Sævar hefur æft með Leiknisliðinu í vetur og ætti að leika með liðinu gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu á fimmtudagskvöld. Í viðtali á heimasíðu Leiknis segist hann spenntur fyrir verkefninu framundan.

„Þetta er góður hópur og skemmtilegir strákar. Mér lýst bara vel á framhaldið. Það er bara tilhlökkun,\" segir Sævar.

„Ég er ákveðinn í að sýna mitt besta og styrkja liðið.\"

Heimild: Leiknir-TV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.